Ævi og störf

Shri Mataji Nirmala Devi

 

Shri Mataji Nirmala Devi eða hreinlega Shri Mataji, einnig þekkt sem frú Nirmala Srivastava andaðist 87 ára að aldri þann 23. febrúar 2011 í Genova á Ítalíu. Hún lagði grunnin að og stofnaði hugleiðsluhreyfingu sem nefnist Sahaja Yoga.

Sahaja Yoga hreyfingin starfar nú víða um heim í yfir eitt hundrað löndum. Á Íslandi hefur hreyfingin starfað frá árinu 2003 og byggist starfsemin á sjálfboðavinnu og frjálsum aðgangi þeirra sem vilja taka þátt.

Bernska

Shri Mataji Nirmala Devi fæddist 21. mars, 1923 í Chindwara, í Madhya Pradesh héraði á Indlandi. Móðir hennar, Cornelia Salve, var fyrsta konan á Indlandi til að hljóta heiðursnafnbót í stærðfræði. Faðir hennar, Shri Prased Rao Krishnan Salve, var afkomandi hinnar konunglegu Shalivahana ættar. Hann hafði á valdi sínu fjórtán tungumál og þýddi Kóraninn yfir á Hindi/Marathi. Hann var ötull baráttumaður fyrir sjálfstæði Indlands og náinn samstarfsmaður Mahatma Ghandi. Eftir að Indland hlaut sjálfstæði var hann kosinn á þing og hjálpaði við að semja fyrstu stjórnarskrána.

Shri Mataji gekk fyrst í hefðbundinn indverskan Sabarmati Ashram skóla. Hún eyddi töluverðum tíma í nærveru Ghandi en á sjöunda aldursári flutti hún í uppeldisbúðir hans. Hin unga Nirmala lærði mikið af honum en gaf honum góð ráð í staðinn í andlegum viðfangsefnum og hjálpaði við bænahaldið. Strax frá unga aldri bjó Shri Mataji yfir djúpstæðri andlegri þekkingu og fljótlega gerði sér grein fyrir mikilvægi þess að mannkynið öðlaðist sjálfsvitundarvakningu. Til að þróa þá vitneskju betur lagði hún fyrir sig læknisfræði og sálfræði í Kristilega læknaskólanum í Lahore.

Baráttan fyrir sjálfstæði Indlands

Á námsárum sínum í læknisfræði tók Shri Mataji virkan þátt í sjálfstæðisbaráttu Indlands, en varð að hætta námi vegna stjórnmálalegrar þátttöku sinnar. Fjölskyldan hennar lék einnig stórt hlutverk í þeirri baráttu. Faðir hennar var náinn vinur og samstarfsmaður Gandhi og á þessum árum varð fjölskyldan hennar að færa miklar fórnir, einnig fjárhagslegar í þágu þeirrar baráttu. Foreldrar hennar þurftu margsinnis að taka út fangelsisvist. Faðir hennar sat t.d. inni í ein tvö og hálft ár og sjálf þurfti hin unga Shri Mataji að sæta pyntingum af hálfu lögreglunnar. Í hjarta sínu vissu þau engu að síður að þessar tímabundnu fórnir voru nauðsynlegur þáttur í frelsis- og sjálfstæðisbaráttu Indlands.

Skömmu áður en Indland hlaut sjálfstæði kvæntist Nirmala Sir Chandika Prasad Srivastava. Hann var einn af kunnustu og skeleggustu embættismönnum Indlands og hafði verið aðlaður (sæmdur Riddarakrossinum) af Englandsdrottningu. Frá 1964-66 var hann skipaður aðstoðarritari forsætisráðherra Shri Lal Bahadur Shastri og síðar kosinn aðalritari alþjóðlegu flotadeildar Sameinuðu þjóðanna, sem átti höfuðstöðvar sínar í London og hélt þeirri stöðu í 16 ár. Allan þennan tíma stóð Shri Mataji dyggilega við hlið eiginmanns síns, annaðist heimilið og ól upp tvö börn. Þó að Shri Mataji hefði frá blautu barnsbeini rannsakað leiðir til að fylgja köllun sinni eftir fylgdi hún henni ekki eftir fyrir alvöru fyrr en hún hafði rækt skyldu sína sem húsmóðir og uppalandi.

Sahaja Yoga

Árið 1970 stofnaði Shri Mataji Sahaja Yoga. Hún uppgötvaði hvernig fólk getur á einfaldan hátt öðlast sjálfsvitundarvakningu sem er hin fullkomna hugleiðsla. Hún hjálpaði fólki án endurgjalds og áréttaði að sjálfsvitundarvakning væri fæðingarréttur allra. Næstu fjörtíu ár ferðaðist hún um allan heim og kenndi hugleiðslu. Hún var elskuð og dáð sem andlegur leiðtogi, framúrskarandi ræðumaður og einkennandi var hversu mildileg hún var í leiðsögn sinni.

Óháð kynþætti, trú, aldri eða stöðu hafa milljónir venjulegs fólks nú lært að nýta sér eigin innri andlegan kraft. Menn öðlast vald til að finna jafnvægi í lífinu. Arfur Shri Mataji lifir áfram í meira en 100 löndum hjá sjálfboðaliðum sem kenna öðrum tækni hennar. Í anda þess sem hún kenndi, munu þeir sem hafa fengið hjálp, hjálpa öðrum eins og kviknar ljós af ljósi.

Alþjóðlegt hjálparstarf

Shri Mataji Nirmala Devi hefur unnið ómetanlegt starf í þágu friðar og samfélagsumbóta. Hún hefur stofnað og sett á laggirnar fjölda hjálpar- og hjúkrunarstofnana, þar á meðal:

Alþjóðlegan spítala og krabbameinsrannsóknarstöð í Mumbai (Bombay), þar sem rannsóknir eru stundaðar til að kanna áhrif Sahaja Yoga á ýmis konar mein, þ.á.m. af sálrænum eða tilfinningalegum toga og fólki alls staðar úr heiminum er hjálpað að lækna sig sjálft með Sahaja Yoga aðferðum.

Alþjóðlegur listaskóli í Indlandi, þar sem kenndur er indverskur dans, tónlist og indverskt handverk.

Góðgerðarstofnun fyrir fátækt fólk í Delhi.

Endurhæfingarstöð fyrir eiturlyfjaneytendur á Ítalíu svo eitthvað sé nefnt.

Viðurkenningar

Shri Mataji fékk margs konar viðurkenningar fyrir fórnfúst ævistarf sitt. Þar á meðal:

1986 – Shri Mataji er kosin persónuleiki ársins af hálfu ríkisstjórnar Ítalíu.
1989 – Shri Mataji hlýtur Friðarverðlaun Sameinuðu þjóðanna.
1993 – Shri Mataji hlýtur heiðursæti í lista- og vísindaakademíu Pétursborgar. Aðeins 12 manns hafa hlotið þann virðingarsess, þ.á.m. Einstein.
1994 – Borgarstjóri höfuðborgar Brasilíu tekur á móti Shri Mataji á flugvellinum og styrkir alla fyrirlestra sem hún heldur.
1995 – Indverska ríkisstjórnin ákveður að senda út árlega klukkutíma langa dagskrá tileinkaða Shri Mataji.
1995 – Shri Mataji er formlegur gestur kínversku ríkisstjórnarinnar og var boðið að halda ræðu á fjórðu alþjóðlegu ráðstefnunni um konur í Beijing þar sem hún talaði um stöðu kvenna og hvernig konur geta breytt heiminum með því að vera sannar konur.
1995 – Shri Mataji er sæmd heiðursnafnbót í hugvísindum og dulsálfræði í Rómverska umhverfisháskólanum.
1997 – Shri Mataji hlýtur viðurkenningu frá bandaríska þinginu.
1997 – Shri Mataji er tilnefnd til Friðarverðlauna Nóbels.
2001 – Shri Mataji hlýtur hinn virðulega titil: Manav Ratna, (gimsteinn manna á meðal), í Mumbai, Indlandi, fyrir óeigingjarnt starf í þágu mannkynsins.

Fyrir utan þessar opinberu viðurkenningar hefur Shri Mataji verið fyrirlesari á virðingarverðum stofnunum, eins og hjá Sameinuðu þjóðunum, þar sem hún hefur fjallað um leiðir til að koma á friði í heiminum